Flýtilyklar
Jólagarðurinn ehf
- Opnunartímar
- Opið er alla daga allt árið um kring:
Júní – ágúst: 10.00 – 22.00
Sept – des: 14.00 – 22.00
Jan – maí: 14.00 – 18.00 - Staðsetning
-
Slétta - 601 Akureyri
Blóm og gjafavörur
Það snarkar eldur í arni, jólasöngvar hljóma og jólaangan fyllir vitin. Jólagarðurinn er sannkölluð töfraveröld
jólanna aðeins tíu mínútna akstur frá miðbæ Akureyrar. Jólahúsið er því líkst að gert væri úr
sætabrauði hið ytra en innan dyra gefur að líta ógrynni hluta tengda jólum úr víðri veröld. Íslensk jól og
jólasiðir eru í hávegum höfð, hangikjöt á bita og laufabrauð í mörgum myndum. Íslensku jólasveinarnir og foreldrar
þeirra skapa veglegan sess. Vandað íslenskt jólahandverk úr smiðju hagleiksfólks víðsvegar að af landinu prýðir hillur.
Umhverfis húsið er garður sem upplagt er að njóta nestis og næðis. Við húsið stendur turn sem hýsir Heimsins stærsta jóladagatal
og í garðinum er einnig Óskabrunnur ófæddra barna sem er einstakur staður.
Sími: 463-1433

