Shop Akureyri | Allar verslanir á einum stað

Shop Akureyri | Verslanir, og tilboð

JB úr&skart

Merki fyrirtækis
Opnunartímar
Opið virka daga 9-18,
laugardaga 11-14
Staðsetning
Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri, Sími: 462-5400
jb@jb.is
Heimasíða JB úr&skart
Auglýsing
Úr skart og gleraugu

JB úr&skart er fjölskyldufyrirtæki og á rætur sínar að rekja allt til ársins 1939 þegar að Bjarni Jónsson úrsmiður, kenndur við Gröf í Víðidal, hóf rekstur. 

Flutti hann sjálfur inn úr fyrir verslunina sína og starfrækti viðgerðaþjónustu hér á Akureyri. 
Jón Bjarnason úrsmiður tók síðan við af föður sínum og rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Bjarna Jónssyni úrsmið. 

Í dag er JB úr&skart umboðsaðili á Íslandi fyrir nokkur þekkt svissnesk úramerki. Mido úrin höfum við flutt inn frá upphafi, eða í um 70 ár og eru enn mörg úr í gangi frá upphafsárunum. Upp úr 1970 hófst innflutningur á Edox og Tissot úrunum og árið 2000 fengum við umboð á Íslandi fyrir Certina úrin. Fyrir utan þessar tegundir flytjum við inn ódýrari tegundir eins og Intima og púlsúrin frá Cardiosport ásamt tískuúrum frá París Hilton og Rodania. Það hefur alltaf verið metnaður fyrirtækisins að bjóða upp á öfluga viðgerðaþjónustu og er verkstæðið eitt það stærsta og best búna á landinu.

 Á síðustu árum höfum við stóraukið úrvalið af skartgripum. Við bjóðum upp á vandaða íslenska skartgripi úr gulli og silfri ásamt því að bjóða upp á innflutta skartgripi. Höfum mikið úrval af trúlofunar- og giftingarhringum.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf