Shop Akureyri | Allar verslanir á einum stað

Shop Akureyri | Verslanir, og tilboð

Dekurdagar

Blóm og gjafavörur , Fatnaður og skór , Heilsu og snyrtivörur , Matvara og drykkir , Úr skart og gleraugu , Útivist og íþróttir

Þú átt dásamlega daga í vændum!

Dömulegir dekurdagar verða haldnir þar sem vinkonur, systur, mæðgur, frænkur og vinnufélagar njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman.

Fjölmörg spennandi tilboð verða í gangi. Eftirtalin fyrirtæki taka þátt í dömulegum dekurdögum.

1862 Nordic Bistro: Dömulegar móttökur að hætti hússins.
Abaco: Í Abaco verðum við með tilboð á snyrtistofunni og vekjum sérstaka athygli á nýrri, flottri collagen meðferð frá Sothys, eins konar yngingarmeðferð. 15 % kynningarafsláttur af þessum meðferðum og öllum Sothys kremum, margt nýtt og spennandi frá þeim. Einnig fylgir með frír ljósatími með öllum nuddum þessa daga.
Accessorize:
30% afsláttur af beltum.
 Amber: Dömur -Gerum okkur fínar fyrir dömulega dekurdaga!

Vikuna 4.-8. Október nk. býður Amber hárstofa dömum sem eiga pantað í litun og klippingu uppá heitann bakstur í nuddstól með djúpnæringu og höfuðnuddi.
Tímapantanir í síma 466 4040
Laugardaginn 9.okt verður svo ofur dekurdagur þar sem dömum er boðið uppá handanudd hjá Fjólu, heilsunuddnema á meðan að meðferð stendur.
Opið verður frá 10:00-16:00 þann dag. Kynning verður á Schwarzkopf vörum og einnig  verður 10% afsl. á vörum, kaffi og konfekt.
Átak: Aqua SPA býður 15% afslátt af nýrri línu í Comfort Zone.
Skrúbb, andlitsbað og handsnyrting með 15% afslætti 8 . og 9.október.
(gildir aðeins í þessa 2 daga)
Laugardagur 9.október – DÖMULEGIR ÞOLFIMITÍMAR
Við byrjum laugardaginn með dömulegum spinningtíma þar sem spiluð verður flott tónlist fyrir hressar konur, Fit Pilates hjá Guðrúnu G. byrjar kl. 10:30  - frábærir tímar á Jafnvægisbolta og Body-Pump hjá Björk byrjar kl. 11:30 – góðar styrktaræfingar. Ulrika Seiler endar síðan á Anusara YOGA en hún hefur fengið mikið hrós fyrir góða YOGA kennslu sem stendur yfir í 90 mínútur – styrkur, teyjur og slökun.
Allar konur sem mæta skrá nafn sitt í afgreiðslu og 2 heppnar konur eiga möguleika á að vinna sér inn mánaðarkort – Dregið verður 10.október – það borgar sig að mæta! Frítt fyrir allar konur á laugardaginn í Átak v. Strandgötu og Átak v. Skólastíg.
Bakgarður Tante Grethe
: Kom i en smagfuldt dame-besög i butikken. Alle damer som har en elegant hat skal få sit eget 10% dame-rabat.
Benetton: Í tilefni Dömulegra Dekurdaga ætlum við að bjóða upp á ýmis tilboð. Þar má nefna Dragtar jakka og vetrarkápur 30 – 40% afsláttur. Síðan ætlum við að bjóða upp nýjar vörur: (Red Dot) kjóla á 6,495.- síða boli á 3,795.- síða rúllukraga- boli m/víðu hálsmáli á 5,995.- margir litir.
Bjarg: Frítt í alla tíma þessa helgi. Við ætlum að dekra við viðskiptavini
okkar með skemmtilegum og góðum tímum, nuddurum við heitu
pottana, happdrættisvinningum og notalegu andrúmslofti.
Föstudagur:
06:10 Hvað er betra á morgnana en spinningtími hjá Tryggva?
Geggjuð tónlist og pottur og smoothie á eftir.
08:15 Body Balance, fullkomin blanda af Tai Chi, Jóga og Pilates, kertaljós og slökun með Öbbu
16:30 Skvísur á öllum aldri! Komið og prufið öðruvísi tíma,
Abba tekur blöndu af því besta hingað til, diskóljós og stuð.
17:30 Body Jam. Gerður kennir sína uppáhaldsdansa, Hip hop, rokk og krump,
brjáluð tónlist og allir í bleiku.
17:30 Dekurspinning, bjóðið körlunum með og nudd í pottinum á eftir.
Laugardagur:
09:05 Dömur, mætið ef þið þorið, hér er erfiðasti þrektími stöðvarinnar, Ólatími.
10:30 Body Balance, fullkomin blanda af Tai Chi, Jóga og Pilates, kertaljós og slökun með Öbbu
13:00 Eva Reykjalín kennir dans eins og henni einni er lagið, Salsaþema. Ekkert aldurstakmark
og allir mæta í brjáluðu dansstuði og í rétta dressinu, bleikt, bleikt!!!
Sunnudagur:
10:15 Langur og skemmtilegur spinningtími, spurning hvort þú svitnar meira hér en í Hot Yoga?
Hot Yoga dagur. Einstaklega vinsælir tímar. Við opnum liðamót og styrkjum vöðva,
bætum jafnvægi, orkuflæðið verður betra og almenn líðan.
Tímarnir verða kl 11:30 (fullt), 13:00(örfá pláss laus) og 14:15.
Athugið að skrá ykkur í þessa tíma til að komast að í síma 4627111.
Hjá okkur eru tveir 10 manna heitir pottar úti og einn inni. Saunaböð eru í klefum og eimgufubað úti.Frábær snyrtiaðstaða. Hægt er að panta aðstöðuna eftir lokun, fá dans eða dekur, nudd, maska og förðun.
Nuddararnir verða við heita pottinn á helstu álagspunktunum, kr. 500 fyrir manninn.
Bláa kannan
: Heimabakaðar tertur, smástykki og kökur. Rjúkandi Expresso, Cappuciono, Latte, Swiss mokka og ekta heitt súkkulaði með rjóma. Dömur á öllum aldri sérstaklega velkomnar á dömulegum dekurdögum.
Blómabúð Akureyrar:
30% afsláttur af öllu bleiku.
Blómabúðin Akur:
30% afsláttur af öllu bleiku.
Brynja: Þær konur sem koma með hatta í Brynju á laugardaginn fá frían ís.
Centro
: Ómótstæðilegt konukvöld á föstudagskvöldið frá 20.00 til kl. 22.00. Sigríður Klingenberg, Beggi og Pagas spá og spegúlera í fötum og framtíðinni.
Christa: 20% afsláttur af pilsum og jökkum.
Design:
Didda Nóa
Eymundsson
Frúin í Hamborg:
20% afsláttur á öllum vörum. Opið til klukkan 20.00 á föstudag og til kl. 18.00 laugardag.
Gallabuxnabúðin

Greifinn:
Dömulegur fordrykkur að hætti hússins.
GS
: Hemmi í Hárkompunni verður í versluninni á laugardag frá 13.00 - 15.00 og leiðbeinir dömum með hár og hárvörur, dekrar og daðrar. 20% afsláttur af völdum jökkum.
Götubarinn:
Tilboð á sérlega dömulegum kokteilum.
Halldór Ólafsson - Úr og skartgripir: Íslenskir skartgripir frá SIF JAKOBS, SIGN, DJULS, UPPSTEYT, HENDRIKKA WAAGE, HRAUNLIST og ASA 20 % afsláttur á Dömulegum dekurdögum
Hagkaup: 20% afsláttur af allri snyrtivöru, dömuskóm, dömunærfötum, dömufatnaði, föstudag, laugardag og sunnudag. Allir þeir sem kaupa snyrtivöru, skrifa nafn sitt aftaná kassakvittun, setja í Pott. Aðalvinningur: 25.000 króna gjafabréf í Hagkaup og svo verða dregin út 5 10.000 króna gjafabréf í Hagkaup að auki.
Hár og heilsa:
 Margvísleg dekurtilboð. Frí djúpnæring m/klippingu og lit,  hárþvott og höfuðnudd m/öllum klippingum og ýmis kostatilboð frá Tigi. Sigrún Inga verður með kynningu á nýjungum frá Guerlain á fimmtudag og föstudag, góðir kaupaukar munu fylgja og þess má einnig geta að Guerlain snyrtivörurnar hafa lækkað um 20%
Hárkompan:
Heilsuhúsið: 25% afsláttur á; Aubrey organics,  snyrtivörur sem eru algjörlega náttúrulegar og lífrænt hráefni alltaf notað ef það er til. Vörurnar eru gerðar úr jurtum, ilmolíum og vítamínum. Rotvarnarefnin eru náttúruleg úr citrus fræjum og út vítamínum, A, C og E.  100% náttúrulegar og ekki prófaðar á dýrum.
Weleda: Ný andlitslína úr granateplum, einn andoxunarríkasti ávöxtur sem til er.
Saman í veski, dagkrem, næturkrem, serum, hreinsimjólk og andlitsvatn.1.990 kr.
Urtasmiðjan Sóla með 20% afslátt af snyrtivörum. Kynning á föstudag milli 14 – 17.
Heilsukjarninn: Föstudaginn 8. okt. frá 18:15 – 19:30 bjóðum við upp á slökun í innilauginni í Sundlaug Akureyrar.  Fólki er frjálst að koma ofan í laugina þegar því hentar og fara upp úr lauginni þegar það vill.
Komið og látið ykkur fljóta í heitu vatninu sem er umlukið kertaljósi og hugljúfri tónlist meðan meðferðaraðilar gefa ykkur heilun  - fóta og höfuðnudd.  Á bakkanum verður hægt að tylla sér og fá sér heitt slökunarte að hætti Heilsukjarnans.  Á eftir er gott að fara út í heitu pottana og láta líða úr sér enn betur. Verð er 1500 kr. og borgast í afgreiðslunni. (Tökum ekki kort).
Laugardaginn 9. október kl. 11 – 13 verður opinn tíma í indjánagufu. Nauðsynlegt er að panta í þennan tíma í síma 820-0800 eða 865-9134 eða á Heilsukjarninn@heilsukjarninn.is . Verð er 4500 kr.
Einnig er hægt að panta í indjánagufu fyrir hópa á öðrum tímum á fimmtudag, laugardag og sunnudag.
Heilsukjarninn ætlar að hafa opið alla helgina eftir pöntunum. Í boði er fyrir einstaklinga heilsunudd, heilun og hómópatía. Hópar geta pantað ,,Litið inn á við” sem er forvitnilega sjálfsvinna þar sem til sögu koma verkefni, tarotspil, herðanudd, fótabað og fleira. Við hvetjum ykkur til að fara inn á heimasíðu okkar www.heilsukjarninn.is og fá nánari upplýsingar.
Hjá Beggu:
Hjá Steinunni:  " Vel klædd er konan ánægð " Tilboð á jökkum, toppum, buxum, pilsum o.fl.Verð frá  kr. 2.500.   Föstudagskvöld opið 8 - 23.
Hrafninn gistihús:
Sérlega dömulegar móttökur.
Hrím:
Hrím Hönnunarhús í Gilinu : Frá kl 14:00-16:00 á laugardag 9.okt verður kertasljós, kakó og kvenlegar kræsingar.Með dömulegum snyrtiveskjum fylgja með sælusápur.
20% af öllum eyrnalokkum og 10% af Arca design kökudiskum
Hrím verslun Hofi : Á milli kl 14:00-16:00 verður kynning á náttúrulegum vörum frá
Urtasmiðjunni. Á meðan kynningu stendur yfir bjóðum við upp á dömuleg orkuskot og djarft sushi nammi!
Við kynnum glæsileg handklæði frá Reykjavík Towels og með þeim fylgir yndislegur skrúbbur frá Urtasmiðjunni. Bjóðum 20 % afslátt af vörum frá Urtasmiðjunni. 15 % afslátt af djúsí skarti frá Uppsteyt & 15 % afsláttur af hlýjum
ullarvörum frá Blik. Með hverri keyptri vöru frá Purity Herbs fylgir svo slökunarolía með fyrir kvöldið ;)
Imperial:
Ísabella:Við dekrum við dömurnar með tilboðum og súkkulaði.
Jara: Í Jörubúðunum verðum við með tilboð á dekurkremum fyrir flottar konur. 15 % afsláttur af öllum body kremum, body lotionum og sturtusápum. Mikið úrval af glæsilegum líkamskremum frá Chanel, Dior, Shiseido o.fl
Joja:
Dömuleg tilboð á völdum vörum.
JB úr og skart: Dekurtilboð - 20% afsláttur af ZINZI skartgripum.
Kaffi Thalia:
KEA hotels
:
Lasenza:
Fríar nærbuxur með öllum Chiffon brjóstahöldurum. 30%
afsláttur af sundfötum.
La Vita e Bella: Sérlega dömulegur Toskaanamatseðill.
Laufabrauðssetrið: Skemmtilegur göngutúr um eyrina í tilefni af dömulegum dekurdögum. Opið hjá Hugrúnu í Laufabrauðssetrinu og hjá Margréti Jónsdóttur leirlistakonu í Gránufélagsgötu 48.
Laxdalshús: Dekurmatseðill fyrir dömur. Aðalréttur, af seðli kr. 1990. Tveggja rétta af seðli kr. 2990. Þriggja rétta kr. 3790. Hanastél fyrir dömur kr. 1100. Tökum á móti stærri og smærri hópum. Borðapantanir og upplýsingar í síma 461-2900
Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi:  „BESØG I GAMLE BYEN“ 
Leikfangasýningin og Lostæti bjóða í heimsókn í Friðbjarnarhús, milli kl. 13 og 16 laugard. 9.okt. Søde og rare dukker  byder jer velkommen.  50% afsláttur af aðgangseyri í tilefni dagsins. Dömulegar veitingar í boði Lostætis.
Tarot-Tóta flettir spilum á „Loftinu“. Allar dömur með hatta sérstaklega boðnar velkomnar.
Leikfélag Akureyrar

Levi´s:
Í tilefni Dömulegra Dekurdaga ætlum við í Levi’s að bjóða upp á 50% afslátt af 10529 og 627 stelpu-buxum sem henta flest öllum konum.
Lindin:
Lostæti:
„BESØG I GAMLE BYEN“ Lostæti veislu- og veitingaþjónusta ásamt Leikfangasýningunni (Dúkkusafnið) bjóða í heimsókn í Friðbjarnarhús, milli kl. 13 og 16 laugard. 9.okt. Søde og rare dukker  byder jer velkommen J   50% afsláttur af aðgangseyri í tilefni dagsins. Dömulegar og nettar veitingar í boði Lostætis.Tarot-Tóta flettir spilum á „Loftinu“. Allar dömur með hatta sérstaklega boðnar velkomnar.
Lyf og heilsa:
20% afsláttur af Biotherm, Lancome, völdum ilmum, Loreal kremum, Max Factor snyrtvörum, Olay andlitskremum, Purity Herbs, Sally Hansen, Lancome og Casarell ilmum og Vichy.
Margrét Jónsdóttir leirlistakona : Skemmtilegur göngutúr um eyrina í tilefni af dömulegum dekurdögum. Opið hjá Hugrúnu í Laufabrauðssetrinu og hjá Margréti Jónsdóttur leirlistakonu í Gránufélagsgötu 48.
Medúlla
: Opið hús fimmtudaginn 7. október frá kl. 18.00 – 21.00. Ráðleggingar varðandi hárið, greiðslur, vörur og fl. Á sama tíma verður spákona í heimsókn hjá okkur fyrir þá sem hafa áhuga á að láta spá fyrir sér. Frítt inn.Spákonan verður líka hjá okkur föstudaginn 8. október frá 11.00 – 14.00. Þann dag verður einnig boðið upp á fría djúpnæringu fyrir þá sem eru að fara í efnameðferð.
Mössubúð:
Nu Skin:
ÓTRÚLEG TILBOÐ…..HAPPADRÆTTI
Galvanic spa…hvað getur það gert fyrir þig?
Förðurnafræðingur á staðnum sem veitir góð ráð um einfalda og náttúrulega förðun.
Laugardag: 12:00 – 16:00
Sunnudag:  12:00 – 16:00
DADDÝ spámiðill …frá  Húsavík verður með Tarrotspilin sín hjá okkur:
Laugardag: 12:00 – 17:00
Sunnudag:  13:00 – 18:00
Passion: Ótrúlega flott tilboð á hárvörum
Pedromyndir
: Tilboð á dömulegum myndavélum.
Pottar og prik: Isi rjómasprautur 20% afsláttur. 20% afsláttur af öllum servíettum. Flott í dömuboðin. Glaðningur handa öllum dömum sem versla hjá okkur um helgina
Purity herbs: Dásamlegt dekur á föstudaginn 8/10 frá 8-16 og laugardaginn 9/10 frá 10-15. Við bjóðum uppá allsherjar andlitsdekur/workshop með Purity Herbs andlitslínunni. Byrjað verður á hreinsun húðarinnar, síðan koma maskar og að lokum Andlits Serum, Undur berjanna og Augn gel.
Konur fá bæði fræðslu um hvað er best fyrir hverja og eina eftir húðgerð og að prófa vörurnar á eigin skinni. Boðið verður uppá dömulega drykki og 30% afslátt af öllum vörum Purity Herbs.
Hægt er að taka 12 konur í einu í “treatment” og því um að gera að panta ef vinkonur vilja koma saman. Einnig geta konur komið til að fá ráðgjöf eða til að versla
Rexín: 20 - 50% afsláttur af völdum vörum.
Rikka:
Rub 23:
Samson:
Allir sem eiga bókaðan tíma 7. 8 .9 okt.fá Aveda hár-spa frítt með. Gefið ykkur smá  auka tíma fyrir dekur, þið eigið það skilið.
Sirka: Fjöldi dömulegra tilboða, glaðningur handa öllum dömum sem versla í Sirku á laugardaginn.
Sjallinn
: Páll Óskar á laugardagskvöld. Hver stenst það?
Skjaldarvík - ferðaþjónusta: Kósíkvöld miðvikud. 6. október kl. 20:00
Komið og eigið huggulega kvöldstund í fallegu umhverfi. Kynning á Friendtex fatnaði og Purity Herbs snyrtivörum. Jóhanna Þórisdóttir verður á svæðinu og sýnir skemmtilegu myndirnar sínar „rassar í sveit“ Að sjálfsögðu verður spákonan* aftur á staðnum fyrir þær sem vilja skyggnast inn í framtíðina. Léttar veitingar sem gleðja bragðlaukana - að þessu sinni verður mínícrepes hlaðborð.Þær sem vilja geta svo stungið sér í heitapottinn.
Verð 1500 kr. Æskilegt er að skrá sig á skjaldarvik@skjaldarvik.is
* spáin kostar 1000 kr. á mann
Ótrúlega flott dömutilboð. Gisting og sérlega dömulegur kvöldverður á laugardagskvöldiðþar sem Beggi og Pagas sjá um matinn og krydda bæði hann og tilveruna eins og þeim einum er lagið. Þeir munu einnig skipta sér af morgunverðinum með ógleymanlegum hætti.
Strikið: Sérvalinn matseðill ásamt heitasta fordrykknum í bænum, sem verður í boði hússins. Kl:22:00 verður skvísustund á barnum þar sem fordrykkir verða á tilboði og allar dömur fá miða á Pósthúsbarinn. Tilboðin gilda bæði föstudag og laugardag.
Valrós: 25% afsláttur af Global hnífum.
Vélsmiðjan - Vínbar:
Spennandi konukvöld sem engin kona má missa af.
Volare:
Við í Volare verðum í Krónunni á föstudagskvöldið þar sem við bjóðum upp á skráningu í frítt dekur á vegum Volare, einnig verða ýmsar vörur til sýnis.
Vouge - Marco: Við ætlum að gefa 20% afslátt af öllu bleiku í búðinni og bjóða upp á sætan glaðing.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf